karin.bloggar.is
Farvel gamle drasl!Heba Karín Sigţórsdóttir
http://www.blog.central.is/-rina
-ses!;*
Hć, ég heiti Kubbur.Heba Karín Sigţórsdóttir
Já, það er rétt. Á morgun verð ég kubbur. Kubbur með strengi.Fór í sýklabyrgið með sveitta fólkinu, og var dugleg. Fór svo heim og dauðhreinsaði mig í steypibaði, eða sturtu.
Það að panikka, er í beinni merkingu, að fríka út. En ég er ekki búin að því ennþá, svo ég held að ég sé bara að stressa mig yfir því sem koma mun. Þetta verður erfitt, ég veit það alveg. En þetta verður þess virði.
Ég mun vera mjög upptekin næsta mánuð, og nokkra daga, en það verður bara að hafa það.
Ég verð að kveðja lífið í smástund og loka mig inní hausnum, sorrí.
Ef þið höndlið það ekki, þá þurfið þið virkilega að byggja upp andlegt þol. Haha, lúserar. Neinei, segi svona.
En í alvöru, ég á eftir að reyna svo á mig að ég svitna næstum við að lesa. Sjitt, hata prófatíð.
Svo fattaði ég að það eru ekki bara samræmdu sem ég hef verið að stressa mig yfir, heldur líka vorprófin sem byrja stuttu eftir! Og þar með hef ég byrjað að stressa mig enn meir, sem leiðir mig nær því að fá taugaáfall. Ef það gerist, þá er númerið 112, fyrir þá sem kunna að telja.
En sko, ég er orðin leið á því að heyra fólk kvarta hvað þau lifa ömurlegu lífi og fái aldrei neitt. Það sökkar. Þið eruð dekruð, þið öll! Og ég hef staðreyndir fyrir því, sem ég ætla að enda bloggið með. Segið mér svo hversu slæmt líf ykkar er þá?
ef þú vaknaðir með fulla heilsu í morgun, ertu lánsamari en sú ein milljón jarðarbúa sem mun ekki lifa af næstu viku.
ef þú hefur aldrei þurft að búa við styrjaldarátök, þá tortímandi kvöl sem fylgir innilokun í fangaklefa, eða hungur, ertu lánsamari en 500 milljónir manna í heiminum.
ef þú getur farið í kirkju (eða mosku) án ótta við fangelsun eða dauða ertu lánsamari en 3 milljónir manna í heiminum.
ef það er matur í ískápnum þínum og þú átt föt og skó, átt rúm og þak yfir höfuðið, ertu ríkari en 75% mannkyns!
ef þú átt bankareikning, peninga í veskinu þínu og smáaura í bauknum, tilheyrir þú þeim 8% af fólki í heiminum sem telst vera að gera það gott!
Ef þú gast lesið ofangreint býrðu við þrefalda blessun því að:
1. einhver hugsaði til þín
2 þú tilheyrir ekki þeim 200 milljónum manna sem kunna ekki að lesa.
3 . og ... þú átt tölvu!
Eins og einhver sagði einhverntíman:
-Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna
-Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur)
- Dansaðu eins og enginn sjái til þín,
-Syngdu eins og engin geti heyrt til þín,
-"Lifðu, eins og jörðin sé Himnaríki."
-HebaLata
Mánudags rólegheitHeba Karín Sigţórsdóttir
Fólk, hvaða leti er í ykkur? Ég er farin að halda að ég þekki ekkert nema moldvrpur sem geta ekki séð linkinn sem merktur er gestabók. bara 2 kvittanir á þessu ári!! Guð blessi þessar tvær elskur, en þið hin eruð bara letingjar. Flest, nema þau sem kommenta alltaf á bloggunum. Þau sleppa í þetta skipti.En nóg um það, í dag á hitt kúlerið mitt afmæli.
Gyrðir Örn Egilsson er 17 ára í dag;*

Og þar með fær hann bílpróf og aðeins 365 dagar í sjálfræðið. Flottur á því.:)
Annað á diskinn, Grey's Anatomy eru opinberlega orðnir grenjuþættirnir mínir. Ótrúlega góðir þættir sko.
Og svo spennandi núna! Fokk sko.
En ég nenni ekki að' segja meir í bili.
Lag dagsins er Norah Jones - Wake Me Up
setja textann hérna með
Wake me up when it's over,
Wake me up when it's done,
When he's gone away and taken everything,
Wake me up.
Wake me up when the skies are clearing,
When the water is still,
'cause I will not watch the ships sail away so,
Please say you will.
If it were any other day,
This wouldn't get the best of me.
But today I'm not so strong,
So lay me down with a sad song,
And when it stops then you know I've been,
Gone too long.
But don't shake me awake,
Don't bend me or I will break,
Come find me somewhere between my dreams,
With the sun on my face.
I will still feel it later on,
But for now I'd rather be asleep
-HebaKarín;*;*
KúliđHeba Karín Sigţórsdóttir
Já! Go ég!! Pottþétt sko.Annars væri bara allt í plati, því ég er kúl. Og gyrðir er líka kúl.
Við erum kúlerið.
Haft af mjög vitrum vörum:
Kúl: notað yfir fólk eins og Gyrði og Karín.
Merking: að vera fáránlega töff og lifi á ystu nöf.
Notkun: um fólk eins og Gyrðir og Karín
Vitringurinn sem orðaði þetta verður 17 ára eftir viku, Haldin verður ráðstefna við Ís-inn í því tilefni, og mun ég líklega kaupa handa honum ís ef ég verð ekki blönk!
Hann á það svo sannarlega skilið fyrir þessi vel ´mæltu orð, beint uppúr alfræðiorðabókinni sem Inga var einu sinni, að eigin sögn.
Og þá er einnig af vörum elskulegrar stúlku að hálft kúlerið fer á stelpukvöld í kvöld, sem er þá væntanlega ég, þar sem Gyrðir er ekki kvenmaður. Allavega ekki ennþá, aldrei að vita hvað gerist þegar við kaupum okkur hús í miami og leikum í CSI. furðulegir hlutir gerast þarna úti.
En stelpukvöldið, það verður að vera flott. Og það mun vera það. Næsheitin eru alveg að fara með mig. Not, ég er of kúl tilað láta eitthvað fara með mig.
DJókur, Gyrðir þú ert líka kúl, ég lofa. Ekki í þykjustunni sko, heldur lofa lofa..:P Kúlerið mun halda lífi með röndóttu regnhlífarnar.
-Heba(hálfa kúlerið)
,,Hefur ţú, bjarti svanur, komiđ á veruleikans auđu strönd ţar sem englarnir dansa..?"Heba Karín Sigţórsdóttir
Gömul skip koma til móts við þig í draumi, og þokan sest hjá þér í sandinum.
Samt sjást ljósin í höllinni, gulgrá skíma, við undirleik hafsins.
Mér líður undarlega. Það er 15. mars og mér líður mjög undarlega.
Ekki bara vegna þess að ég hef fengi margar spurningar um hvenær ég ætli að koma á oddféló, sem ég hef ekkert svar við, eða vegna þess hversu mikið ég hef lært að undanförnu, Heldur vegna þess að í dag, hefði getað verið öðruvísi dagur, ef líf mitt væri enn í sömu stefnu og það var, fyrir 11 dögum. Ég veit ekki hvernig dagurinn hefði orðið, en ég veit að ég hefði líklega ekki eytt honum á bókasafninu að læra.
En ég hef nú í 11 daga verið að taka nýja stefnu og einbeitt mér að takmörkum mínum, og það virðist ætla að ganga mér í hag. Þótt auðvitað sakni ég þess að vera ástfangin upp fyrir haus, og sakni þess að geta farið á oddféló og svoleiðis. Auðvitað sakna ég þess, en ég sé ekki eftir því að hafa tekið nýja stefnu, því hún er mér í hag. Ég mun reyna að komast á oddféló, til þeirra sem spurt hafa, en allt tekur sinn tíma. og núna þarf tíminn að vinna, til þess að græða opin sár. Og þegar það hefur tekist, þá kannski, ef það er í lagi annara aðila vegna, þá get ég kannski komið.
enn sem komið er, er ég alls ekki góð bretta manneskja, og held mér því í safe-zone á skíðum, sem verður þó áberandi hjá mér á morgun, því þá er útivistardagur og öllum rúllað uppí fjall. Svo um kvöldið kemst ég vonandi á skauta, því ég hef gert mér upp vonir um það í þó nokkurn tíma því ég sakna þess aðp vera á skautum og renna eftir ísnum. Það er yndislegt. Dreymdi einu sinni að ég ætti litla tjörn með skautasvelli í garðinum.. Það var mjög góður draumur.
annars er það í helstu fréttum að átak er byrjað. Það felst í því að borða minna milli mála og gera fleiri æfingar. Og ekkert gos né sælgæti. Alls ekki. Þótt ég hafi ekki drukkið gos í tvö ár. En í þessu tilfelli teljast Kristall og félaginn Plús með, þar sem þeir eru kolsýrðir drykkir.
Lad dagsins að þessu sinni er "Pink Floyd - Wish You Were Here", því nú ræð ég, en ekki Darri.
http://www.myspace.com/pinkfloyd
Mjög fallegt lag.
Og þar með lýkur þessu bloggi.
-HebaKarínSigþórsdóttir
HelginHeba Karín Sigţórsdóttir
Já heyrðu. Þar sem hugmyndirnar að nýju umræðuefni voru alveg útúr kú, þá ætla ég bara að segja frá helginni.Föstudagurinn var nokkuð rólegur sko. Fór bara í skólann og fvar svo eitthvað heima.. Fór niðrí bæ um kvöldið með Steffý og eitthvað..
Laugardaginn var ég vakin af simanum... og rut skipaði mér að koma í sund og eitthvað.. þannig að ég gerði það, og svo var haldið niðrí bæ þar sem franskar og rögnuoghallbjarnaroghákonarsubbuskapur var á boðsstólnum. Mjög, intresting. En svo fórum við á Glerártorg þar sem keypt var nammi fyrir þau litlu, og þar skildust svo leiðir..:P Eftir það fór ég í afmæli hjá frænda mínum.. koma heim eitthvað um 8 leitið.. og svo um hálf tíu fór ég út á rúntinn með Sabrínu og Elvari.. fórum og sóttum Georg og Láru.. bara stuð sko.. stoppuðum hjá einhverjum gaur, og það var freekar lonely..:') svo f´r ég bara heim eithvað um 12 leitið..
allavegaa.. sunnudagur í dag sko. Var að vakna áðan sko.. þreytt. Þarf að fara á einhverja fjáröflunar tónleika í glerárkirkju...(Y) jeess.. en ég nenni þessu samt ekki sko:P
Farin í sturtu..
-HebaKarín;*
Indćla LífHeba Karín Sigţórsdóttir
Jáá heyrðu. Ætla nú að byrja á því að afsaka þessi hundleiðinlegu blogg fyrir neðan:D En kommón, þau eru alveg rosalega vel ´tlkuð:D Haha, (egó í hámarki).En þvílík sæluvíma sem yfir lífið fer sko:D Finnst ég svo endurnýjuð því að nú, frá og með þessari stundu, ætla ég að byrja uppá Nýtt..:D Bara 6 og hálf vika af áhyggjum og endalausum lærdómi, og svo er ég free og get einbeitt mér að því að útskrifast og njóta sumarsins:D Vááááww Haha!!! Sjitt sko hvað ég er í góðum fílingi.. Væri alveg til í að fara bara út að dansa í sliddunni á götunum..:') Úff hvað það væri töff.. geggjað ein að dansa útá götu.. Allir að joina! Hehhehh.. með Bob Sinclar - rock This Party (Everybody Dance Now) í bakgurrni sko.. úff hvað það væri hart marr:D
En ókei, vó.. ég er búin að sitja og lesa í Englum Alheimsins í örugglega klukkutima eða meira.. komin á bls. 81.. haha.. á að vera búin með niður 104 fyrir morgundaginn..:') þaaaað reddast:P
En annars hef ég ekk iverið að gera mikið:P Fór í bíó í dag haha.. Terabithia myndin... soldið sérstök, en ekkert leiðinleg samt.. nema í byrjuninni.. og soldið sorgleg rétt fyrir endirinn haha.. en annars fín sko..
Eeeen allavega, þá byrja ég allt uppá nýtt með glöðu geði og jákvætt viðhorf:D
þannig, þið getið hlakkað til þess sko:D engin fýla eða þreyta, þótt ég sé oft þreytt..:D ætla ekki að læáta það sjást á mér sko:D
en ég held þetta sé komið í bili sko..;)
Datt í hug að leyfa ykkur að ráða næsta umræðuefni þannig.. ég þarf komment um hvað það á að vera..:d og ekkert sem er alveg útúr kú sko..:p eitthvað sem ég get skrifað um haha..:P sjá hvernig það virkar;)
Enda hér með þetta blogg með Bob Sinclar - Rock This Party (Everybody Dance Now):D
-HebaKarínGlaða;**
Undir veruleikanum.Heba Karín Sigţórsdóttir
Undir veruleikanum leynast skuggar. Ég þekki þá ekki. Allavega ekki alla. Einum kynntist ég í gærkvöldi, og mér langaði að gráta. Ég þoli þetta ekki lengur, ég er alveg búin og Over. Ef þú getur ekki skilið, þá verður það bara að vera svoleiðis. En reyndu.Reyndu að skilja mig, því ég er orðin leið. Og ég vil ekki vera leið lengur, og ég ætla ekki að vera leið lengur. Ég veit alveg hvernig ég get hætt að vera leið, en ég er hrædd við það sem tekur við. Því ég veit það ekki. Og Óvissan er grimm.
Undirförull sannleikurinn leynist bakvið allt. Og stundum kemur hann ekki fram fyrr en það er orðið of seint. Og núna er of seint. Það er of seint fyrir mig. Ég hef tekið mínar ákvarðanir og þeim verður ekki haggað, því ég ætla að vera sterk.
Ég er ég, og ég breytist því að ég þroskast. Ég breytist ekki tilað ganga í augun á öðrum. Því að ég hef þroskast upp úr því.
"We're adults. When did that happen? And how do we make it stop?"
Intimacy is a four syllable word for,
"Here's my heart and soul,
please grind them into hamburger,
and enjoy." It's both desired, and feared.
Difficult to live with, and impossible to live without.
Intimacy also comes attached to the three R's...
relatives, romance, and roommates.
There are some things you can't escape.
And other things
you just don't want to know.
-HebaKarínSterka
Hugsun.Heba Karín Sigţórsdóttir
Já, dagurinn í dag var... intresting.Var að horfa á Uptown Girls áðan, og áttaði mig á því að þar sem stelpan talar um það, að það séu allir að segja manni hitt og þetta, að maður viti ekkert um hvað þau eru að tala, að andlitin verði smám saman að litlum klessum.. og hún kannist ekki lengur við þau stundum... Allt hringspinnist í kringum hana, einsog í risa bollum í tívolí.. og þú ert bara litla stelpan sem situr alein, og þorir ekki að stoppa, því hún er hrædd við það sem tekur við.... Það er allt satt, á einhvern hátt. Einn eða annan, skiptir ekki máli. Það er satt fyrir mig. Og ég veit að það hljómar barnalega, en þar sem ég sat þarna alein inní stofu undir teppi og horfði á myndina.. eftir að hafa verið að hugsa og hugsa og hugsa.. þar til ég bara gat ekki hugsað meir, því allt sem ég hugsaði.. ég veit ekki hvað það var. ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi í kringum mig lengur, og hvernig ástand mitt er lengur. Og þar sem ég sat þarna og horfði, og hlustaði á það sem hún sagði.. þá rann það upp fyrir mér hversu satt það er. Og ég var næstum farin að gráta, eins asnalega og það virðist, en ég var það samt, næstum.. Ég er ekki viss, en mér líður illa. Og mér má líða illa, enda er enginn sem bannar mér það. Ég læt það ekki draga niður fólkið í kringum mig. Infact, reyni ég að gera mitt besta til þess að blanda engum inní þessa óvissu, þennan brenglaða raunveruleika sem hefur skollið á mig einsog risastór alda, og fiskarnir hvísla að mér, einn á fætur öðrum, allt sem þeir hafa að segja. En ég skil þá ekki. Þeir eru bara fiskar, og ég er alein. Ég er umkringd aragrúa af mismunandi tegundum lífvera, en ég er samt alein. Og það er það sem ég þarf til þess að geta hugsað, í friði... En stundum vill maður ekki frið. Stundum þarf maður einhvern sem elskar mann og virðir. Og ég vil það. Ég veit ekki hvernig ég á að laga hlutina, en ég er að reyna. Ég geri það sem ég tel best, og svo verð ég að kljást við afleiðingarnar, hverjar sem þær verða. Þótt ég þurfi að gjörbreyta lífi mínu, þá mun ég gera það, ef það er það sem þarf til þess að koma hlutunum í lag. Því ef hlutirnir eru ekki í lagi, og við höldum endalaust í eitthvað því við erum hrædd við það sem tekur við ef við sleppum, þá verðum við aldrei heil. Og ég vil það ekki. Ég vil vera heil, og ég ætla mér, að verða heil.
Og ég vona, að aðrir aðilar geti orðið heilir líka.. því við eigum það öll skilið. Og það er það eina sem ég get beðið um.. að vera heil.
-Heba Karín Sigþórsdóttir..
Árshátíđar-eftir-veiki..Heba Karín Sigţórsdóttir
Já, þar hafið þið það. Ég er komin með alveg helvíti slæmt kvef, rétt eftir árshátíðina.. Geggjað, ekki satt? Nei, hélt ekki. En allavega, þar sem ég sit nú hérna að berjast við það að anda án þess að hósta eða sjúga uppí nefið, þá ætla ég að reyna að segja eitt og annað til þess að koma almennilegu bloggi hingað loksins.Fimmtudagur:
Þurfti að mæta í skólann kl. 8 því ég var í skreytinganefndinni, og við kláruðum allt með pompi og prakti sko, og´mér persónulega finnst við hafa staðið okkur einsog hetjur því alurinng var fantastic sko. Svo um hálf eitt var fyrsta sýiningin.. fyrir 1.-5. bekk, og ég held nú bara að það hafi gengið sæmilega sko.. nema hvað að veikindin fóru að segja til sín í einsöngnum, en það lagaðist.. Um fjögurleytið var síðan ein foreldrasýninganna og gekk hún bara nokkuð vel. Svo var kaffihús og étið fullt af kökum..:) og eftir það eyddi ég bara kvldinu í að keðjuéta ópal og hálsmola..
Föstudagur:
Fékk að sofa svona sæmilega, hefði samt getað verið betra.. Foreldrasýning aftur klukkan 3 held ég.. svo var aftur kaffih
ús haha.. geggjað.. fínger öpp sko..
Svo um kvöldið var aðallinn maður! Sýningin byrjaði um hálf átta, og ég mætti þarna geggjað venjuleg sko í fötunum sem ég lék í haha.. allir geggjað fínir og eitthvað.. en já.. svo var sýningin, söngleikurinn okkar.. klúðruðum endanum í dansinum hahaha.. og tek það sterklega fram að Brynja U getur aldrei aftur sagt að ég klúðri einhverju því í þetta skipti var það hún:D haha.. æjh.. þetta reddaðist samt alveg.. og svo kom þetta blessaða kennaragrín.. ÆÐISLEGT og án efa langt besta sem verið hefur í áraraðir!! Við erum kúúúl. og svo nemendagrínið hjá kennurunum.. Bibbi endaði sköllóttur og hann og siggi með rjómakkur í andlitinu.. great!
Svo hlupum við stelpurnar í búningsherbergið okkar og tókum okkur tíma í að gera okkur til, allar fínar í kjólum og hælum og geggjað sko:D:D svo dansað einsog brjálæðingar og svoleiðis.. Ædih.
svo var nú bara haft gaman og ekkert að flýta sér á leiðinni heim.. labbaði alveg laaaanga leið með höllu og binna.. og svo bættist þráinn við þegar halla fór.. en jám.. veit ekki alveg til hvers ég er að segja með hverjum ég labbaði heim hahaha.. skiptir ekki máli sko, en okei, múvíng óón..
Laugardagur:
Eyddi þeim degi bara ágætlega sko.. fór niðrá glerártorg og hékk eitthvað það, en fór þá að finna fyrir svona smá máttleysi þannig að ég fór bara heim með magga.. horfðum á mynd og svo komu john og katas þegar hóstinn minn og veikindin var alveg að ná hámarki sko.. vorkenni þeim eiginlega að hafa þurft að sjá mig svona haha.. æji.. en svo fór ég heim.. og þar fékk ég bara kast og eitthvað.. Stend fast á minni skoðun að Ísland sé ruglað að senda aftur vitlaust lag út, og svo eyddi ég kvöldnu bara á msn.. mjög undarlega skemmtilegar samræður þar hahahah.. jám.. en svo ætlaði ég að sofa út en vaknaði í nótt með hósta og kvef í fullum mælio hg hef ekkert sofnað aftur.. er að deyja sko.. en það þýðir ekkert að kvarta sko ég fékk allavega árshátíð lífsins sko..:)
og svo í dag hef ég í rauninni ekki gert neitt newma liggja uppí rúmi.. frá því í nótt og nú um tæplega tólfleytið nennti ég því ekki og fór í tölvuna.. áttaði mig á því að þeg þyrfti að blogga, og nú hafiði það! og nú nenni ég þessu ekki lengur.
´
-Hóstandi Heba..